Ein teskeið pipar og þrjár matskeiðar sykur blandað saman við hálfan líter af......

Ég er þreytt, eins og alla aðra daga í þessari viku á þessum tíma dags. Ég þyrfti að útvega mér einhvern súper dúper hressidrykk til að halda mér gangandi þar sem svo margt liggur fyrir.
Hefði "þurft" að sinna ýmsu, bæði skemmtilegu sem og minna skemmtilegu, en mig skortir alla orku til framkvæmda...

Nú eða kannski maður ætti að leigja sér heimilishjálp sem sinnir öllum heimilisverkum svo ég geti einungis sinnt þessu skemmtilega.....en það væri plús með hressidrykkinn að auki Ullandi

Allavega, ég ætla að leggja leið mína í vítamíndeildina mína og sjá hvað er í boði...kannski eitt stykki B-súper eða C vítamín?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband