Vaskurinn búinn!!!! :-)

VSK skil í dag, og þvílíkur dagur! Þar sem veikindin hafa verið tíður gestur á mínu heimili og vinnudagarnir sumar vikur ekki nógu margir... eins og í síðustu viku, þá þarf að gera meira á minni tíma þegar veikindin eru frá.... eins og í dag Shocking

Skemmtilegir tímar framundan, á miðvikudag eða fimmtudag fer ég í Sjóminjasafnið með mína mynd sem ég ætla að sýna á samsýningunni "Íslendingurinn og hafið" sem hefst á safnanótt, föstudaginn 11 febrúar kl. 19:00. Við verðum 30 sýnendur, allir með eina til 2 myndir, ég verð með eina..... því ég á bara eina sem mér finnst passa við þemað.... Íslendingurinn og hafið :)

Svo er auðvitað skólinn á fimmtudagsmorguninn, ég mun halda áfram með samspil ljóss og langra skugga.... virkilega gaman!!! Kannski jafnvel ég smelli grunni á enn eina nýja.... hver veit?

Eldhússtörfin hafa skorað hátt undanfarið, sér í lagi eftir að pastavél og ísvél komu í hús..... mæ ó mæ hvað hér er etið! 
Pastadeigið flatt út .....og svo skorið í Tagliatelli :)

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: www.zordis.com

Gangi þér vel á sýningunni eða réttara sagt, góða skemmtun því ég veit þér gengur vel!  Vonandi er nú pestarræfillinn að yfirgefa húsið og að allir verði fjörugir fram á næsta haust eða þangið til ræfillinn snýr á ný.

Lítur vel út pastað hjá ykkur!  

www.zordis.com, 8.2.2011 kl. 16:37

2 identicon

Takk sætan mín

Elin Bjork (IP-tala skráð) 12.2.2011 kl. 12:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband