26.2.2008 | 20:27
Í háttinn klukkan átta
Eftir 3ja tíma stapp við börnin var mér nóg boðið og sendi þá í rúmmið.... klukkan átta takk fyrir!
Sá siður var hjá okkur á Spáni að í háttinn var klukkan hálftíu-tíu, sem var fínt enda byrjaði skólinn þar klukkutíma síðar en hér. Núna þarf að vakna klukkutíma fyrr en ekki séns að þeir fáist til að fara klukkutíma fyrr í háttinn, ónei. Helst að þeir teygi lopann eins lengi og kostur gefst eða svo lengi að þeir verða þreyttir og fúlir daginn eftir. Eins og í kvöld.
Best ég reyni að finna brosið aftur....
Flokkur: Menning og listir | Facebook
Athugasemdir
Góóóóð .... minn fór að bursta tennur klukkan 21.30 / ég komst að því hver skvettir úr tannburstanum sínum dropum á spegilinn .... ..... ég varð ekki reið en sagði að næst þá !!!!
Knús á þig elskan mín og við sjáumst fljótlega!
www.zordis.com, 26.2.2008 kl. 21:37
Æ, en hvað ég hlakka til!!! Knús á móti
Elín (IP-tala skráð) 26.2.2008 kl. 23:05
Knús á þig.Nú verður væntanlega góður dagur á morgun.
Góða nótt
Solla Guðjóns, 26.2.2008 kl. 23:42
Barningur við börnin er ekki það skemmtilegasta við að vera foreldri Mér finnst lífið aldrei eins kaótískt eins og eftir að hafa reynt að koma skikkan á hlutina heima fyrir.
Ég er að verða vitlaus á veikindum. Síðustu mánuðir í lífi mínu hafa einkennst af einveru, inniveru og nú veikindum. Dásamlegt að vera í barneignafríi
Hlakka til að koma og vinna með ykkur ef það losnar einhvern tímann dagmamma.
Kveðja,
Eva
Eva (IP-tala skráð) 27.2.2008 kl. 11:14
Njóttu kvöldsins Þau eru ótrúlega yndisleg þegar þau sofa þessar elskur
Sigrún Friðriksdóttir, 29.2.2008 kl. 00:28
'O sá núna að þetta kvöld var í fyrrakvöld, vonandi allir vaknaðir núna
Sigrún Friðriksdóttir, 29.2.2008 kl. 00:29
Sakna þín elskan mín
Solla Guðjóns, 3.3.2008 kl. 11:01
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.