31.1.2007 | 22:35
Yndisleg vinkona kom aftur í dag....
...sólin hehe... var búin að vera að mestu týnd síðan á föstudag. Stórkostlegt sköpunarverk þessi sól, gerir dagana svo mikið bjartari
Þannig að ég er ekki búin með myndatökuna góðu, en miðað við veðurspár þá er hún á döfinni innan fárra daga.
Við erum búin að eiga fína daga, þrátt fyrir skýin. Ágúst byrjaði í fótbolta fyrir viku og nú ætlar stóri bróðir að fylgja fast á hæla hans og sparkast á við hann um tuðruna.
Ég er búin að hafa fortíðardraugana hangandi á öxlinni, er dottin inn í gamla músík, munið þið eftir þessu?
http://www.youtube.com/watch?v=UShSyZJdX1c
Ég man nákvæmlega hvar ég var og hvernig mér leið þegar ég var að hlusta á þetta lag.... við spænskar strendur - en þetta var spilað stanslaust í útvarpinu þá!!!
Hér var danssýning í gær, stóð hann Aron fyrir þeirri sýningu "mira como yo bailo!!!" Ekkert smá flottur, næst tek ég hann upp á videó
*Knús smús*
Flokkur: Menning og listir | Facebook
Athugasemdir
Youtube. say no more! Lítil dansprins og braedur í boltanum .... hvad er betra zegar lífid rúllar dásamlega áfram. Vinkona zín er ljúf og "hot" heheheh
www.zordis.com, 31.1.2007 kl. 22:42
Eins og fleiri ;)
Elín Björk, 31.1.2007 kl. 22:48
Eins og ég og þú td ;)
Elín Björk, 31.1.2007 kl. 22:56
Já eins og zú og ég! Búin ad taka leigumordingjann ..... ó, já!
www.zordis.com, 31.1.2007 kl. 23:53
OOH væri til í smá sól núna.Alltaf líf og fjör í drengjunum þínumÆtla að syngja hahah lagið fyrir Pálmason NÚNA hann er að fara á fjall í fyrramálið.Gömul músík =góður dagur.
Kús í suður
Solla Guðjóns, 1.2.2007 kl. 00:05
Mmmmmm sól I love it
Sigrún Friðriksdóttir, 1.2.2007 kl. 11:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.