22.1.2007 | 18:16
Fínn mánudagur
Eins og vera ber, hvað annað?
Möndlutrén eru farin að blómstra, það benti Zórdísin mér á í dag, verða eflaust í fullum skrúða næstu helgi, ég ætla ekki að klikka á myndatöku þetta árið
Það munaði minnstu að ég yrði litlum sætum íkorna að aldurtila í morgun er ég brunaði á svarta líkbílnum mínum í vinnu í en hann slapp fyrir horn, fjúkk! En ég minntist óneitanlega kattarins sem ég sá útflattan úti á götu hér um árið, svona eins og maður sér annars BARA í teiknimyndunum....... -Nú getur hver og einn notað hugmyndaflugið....
Flokkur: Menning og listir | Breytt s.d. kl. 18:20 | Facebook
Athugasemdir
*hrollur* Fleginn köttur er með því hræðilegasta sem ég hef séð á götunni! Það er agalegt að verða þessum litlu dýrum að skaða og sem betur fer hef ég sloppið! Bara goður dagur og styttist eins og óð fluga í helgina!
www.zordis.com, 22.1.2007 kl. 18:46
Þetta var besti mánudagur í manna minnum - þrátt fyrir hrakspárnar.
Engillinn kemur í hús á morgun. Ég hef svo samband.
Lisa (IP-tala skráð) 22.1.2007 kl. 22:24
Mánudagur ummmmh
Tommi greijið lenti nú oft í því og einhvern veginn sé ég þessa óláns kisu útfrá því.Möndlublóm aldrei leitt huganað þeim.....ekki klikka á að setja mynd af þeim
Solla Guðjóns, 22.1.2007 kl. 22:38
Gaman að lesa blogginn þín,
Kær kveðja Sigrún
Sigrún Friðriksdóttir, 23.1.2007 kl. 23:10
Bara á rúntinum....knús
Solla Guðjóns, 24.1.2007 kl. 02:34
OOOhh deildu nú með okkur flotttum myndum af framandi jurtum og náttúru
Hlakka til
Knús Sigrún.
Sigrún Friðriksdóttir, 24.1.2007 kl. 22:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.