Nýtt ár - ný fyrirheit

Þá er gamla árið liðið og hið nýja hafið.

Á nýju ári langar mig að gera meira en á því gamla, mála meira, leika meira, lifa meira.

Við áttum notalegt aðfangadagskvöld með strákunum okkar, mömmu, Gauja og Sólveigu sys. Restina af jólum og áramótin vorum við bara 3, við gömlun og svo litli stúfur. Kósíheit par Exellans Wink .

Ég byrjaði á nýrri mynd aðfararnótt gamlárs, nú er ég að undirbúa mig undir samsýningu sem opnar þann 1. febrúar í ART67 á Laugaveginum. Hver og einn verður með 2 stk 20x20 myndir. Verður örugglega flott!

Ég vil svo óska öllum gleði- og gæfuríks nýs árs Kissing

Saknisakn!

Í blómaEkki laust við að kona sakni bloggsins eilítið, enda langt um liðið.

Búin að skoða gamlar myndir þar sem sólin er við völd, ég sakna San Miguel! Hvítu húsin, flísalögð strætin, Zordis, torta de sal, möndluakrar, mercadillo, fiesta, málningarnætur, fólkið á götunum og svalirnar mínar! Svo margt að minnast!

Sakna þó ekki líkbílsins, þó hann hafi komið mér á leiðarenda, svona oftast Cool

Er búin að "vinna" heima í nóvember, skrifstofuflutningarnir hafa dregist á langinn. Ég er ekki alveg að ná að halda mér við efnið, tölvan mín er heldur ekki sú skemmtilegasta, svona "krasstýpa" Shocking  En það þarf víst að lifa, svo það er best að fara að koma sér að verki.

c_documents_and_settings_all_users_documents_my_pictures_kodak_pictures_2006-12-25_100_3509.jpg

Knús á alla, konur og kalla Kissing

Vaskurinn búinn!!!! :-)

VSK skil í dag, og þvílíkur dagur! Þar sem veikindin hafa verið tíður gestur á mínu heimili og vinnudagarnir sumar vikur ekki nógu margir... eins og í síðustu viku, þá þarf að gera meira á minni tíma þegar veikindin eru frá.... eins og í dag Shocking

Skemmtilegir tímar framundan, á miðvikudag eða fimmtudag fer ég í Sjóminjasafnið með mína mynd sem ég ætla að sýna á samsýningunni "Íslendingurinn og hafið" sem hefst á safnanótt, föstudaginn 11 febrúar kl. 19:00. Við verðum 30 sýnendur, allir með eina til 2 myndir, ég verð með eina..... því ég á bara eina sem mér finnst passa við þemað.... Íslendingurinn og hafið :)

Svo er auðvitað skólinn á fimmtudagsmorguninn, ég mun halda áfram með samspil ljóss og langra skugga.... virkilega gaman!!! Kannski jafnvel ég smelli grunni á enn eina nýja.... hver veit?

Eldhússtörfin hafa skorað hátt undanfarið, sér í lagi eftir að pastavél og ísvél komu í hús..... mæ ó mæ hvað hér er etið! 
Pastadeigið flatt út .....og svo skorið í Tagliatelli :)

Upp og niður út og suður

Nýja árið er komið með nýjum væntingum Wizard

En væntingar standa víst ekki alltaf undir sér, t.d. vonaðist ég eftir ælupestalausu vori, en nei, sú fyrsta er þegar komin og sú síðasta bara nýbúin! Heiðurinn á hann Baltasar - náði sér í fyrstu gubbu ársins. Undarlegt með þessar magapestar, þegar ég flutti til Spánar fengum við okkar skerf af svoleiðis - en vorum á móti nokkuð laus við horpestar, öfugt við á Íslandi. En núna þegar við erum komin aftur á klakann hélt ég nú við yrðum þá laus við gubbuna því hér átti bara að vera hor.... en þá er það bæði... og mikið af því! Sick

Ég ætla að taka þátt í samsýningu sem opnar á Safnanótt 12 febrúar. Læt mér að öllum líkindum duga að sýna eina mynd sem ég byrjaði á í fyrrasumar, hún fékk að bíða síns tíma og er ég að leggja lokahönd á hana þessa dagana. Hlakka til að taka þátt! Svo þarf ég bara að setja mér næsta markmið, spurning að stefna á aðra sýningu í sumar?

Það styttist í að Baltasar fari að geta málað með mér sem mun gera líf mitt mun einfaldara - held ég!?

Skólinn byrjar aftur í næstu viku, hlakka til að fá aftur fimmtudagsmorgnana í terpentínu og olíuilminum Kissing  Spennandi líka að sjá hvert fyrsta verkefnið verður Cool

Helgin framundan, spurning um að ráðast á jólaskrautið og koma því í kassa?

Að vörmu...

2 mánuðir liðnir, 2 "hektískir" mánuðir.....
Eldhúsið er komið á sinn stað ef frá er talin ein hurð, eitt ljós, 2 "innstungu" rammar, eitthvað innvols og smá snurfus. Snilldin ein, held ekki kökkenet hefði getað lukkast betur!
Eldhús fyrir breytingar Hér má sjá afraksturinn, reyndar erum við komin með eina hurð til viðbótar eftir að þessi mynd var tekin og rafmagnið er betur fragengið en var þarna.... Eldhúsglugginn
Gardínur eru komnar í eldhúsgluggann og settum við upp nokkrar litlar eldhúsmyndir svona að setja punktinn yfir i-ið :)

Svo er það skólinn, læfseivjerinn.... sérstaklega þegar ekki hefur gefist tími til heimamálunar, algjörlega og gjörsamlega nauðsynlegt að komast í sköpunina. Ég fæ að spreyta mig á öðru en því sem ég hef verið að gera undanfarin ár, Sara er dugleg að láta mig nota litina, bara snilldin ein :) Ég er nú þegar búin að skrá mig í tíma hjá henni eftir áramót, vil enganvegin missa af þessum snilldarstundum!
Skólaverkefni 2, 4 lög komin á strigann 

Baltasar lasinn 3. des. 2010Litli stúfurinn er lasinn í dag, hann hefur verið að pikka upp allar pestar sem ganga síðan hann byrjaði hjá dagmömmunni. En það er aðeins sjaldnar sem ég þarf að vera heima núna en var fyrir 2 mánuðum, svo þetta er allt til bóta, mótefnin hans eru að byrja að virkjast, hehehehe!
Hann er farinn að tala heilan helling, bætast við ný orð svo til daglega... í dag var það Dagfinnur eða Daddú! -krútt!

Hlakka til að jólast, ætlum að baka piparkökur um helgina og líklega málum við nokkur jólakort saman. Gaman að eiga kósístundir innandyra þegar kuldinn er úti :)

Lífið er gott!


tjetjetjetjetjeindsjes!

Gamla eldhúsiðÞá er enn á ný komið að breytingum hjá okkur, "gamla" eldhúsið fær að víkja fyrir nýju. Okkur vantar borðplötur svo það var tekið á það ráð að skipta út og expandera kökkenet.... verður spennandi að sjá lokaniðurstöðuna. Framundan eru því dagar/vikur þar sem lítið mun fara fyrir eldunarhæfni okkar hjóna og jafnframt má gera ráð fyrir meira garnagauli og hávaða í einhvern tíma.

Ég hef verið að leggja höfuð í bleyti án árangurs, ég get ómögulega fundið út hvað er hægt að elda í örbylgjuofni annað en pizzur og núðlur.... ENNÍVONN???
Úff, nú blasir bara við að fara í búð með nýju hugarfari.... örbylgju! Mín hugmynd er að leggjast í hráfæði en held ekki það falli í ljúfan jarðveg hjá 5 ört vaxandi drengjum með gott magamál og með hamborgara og pizzur efst á óskalistanum.....

Annars byrjaði ég á námskeiði í Myndlistarskóla Kópavogs á fimmtudaginn, hjá Söru Vilbergs. Fyrsta verkefnið er að gera þrívíddarmynd út úr tvívíðu efni og er  myndefnið af örsmáum/macrosmáum hlutum sem verða stækkaðir þúsundfalt upp á strigann... GAMAN! Hlakka þegar til næsta fimmtudags W00t

Baltasar fékk sér lúr, spurning um að fara að ræsa drenginn svo hann sofni í kvöld?

Knús knús knús!


Sýningin okkar

... er með eindæmum flott!

Opnunin s.l. laugardag tókst vel til í alla staði, þar voru mættir fjölmargir að samgleðjast okkur stöllum Heart

Opnun samsýningar Ágústhópsins

 

 

 

 

 

 



Sýningin er enn í fullum gangi og stendur til sunnudagsins 12. september.


Myndlistarsýning Ágústhópsins - Verið velkomin!


ÁGÚSTHÓPURINN


VERIÐ VELKOMIN Á OPNUN
MYNDLISTARSÝNINGAR OKKAR
Í RÁÐHÚSI REYKJAVÍKUR
28. ÁGÚST KL. 14-17.
SÝNINGIN STENDUR TIL 12. SEPTEMBER.

  

ELÍN BJÖRK GUÐBRANDSDÓTTIR

 

GUÐNÝ SVAVA STRANDBERG

 

KATRÍN NÍELSDÓTTIR

 

ZORDIS

 

 

 

 


Í stuði með Guði....

Margt og mikið í gangi hér á bæ, 9 dagar og styttist óðfluga í opnun samsýningar minnar og 3ja kvenna að auki er haldin verður í Ráðhúsinu. Penslar á lofti, að ýmsu þarf að huga!!!

Baltasar Nói byrjaði hjá dagmömmu á mánudeginum í síðustu viku og byrjaði aðlögunina með stæl.... en þessi vika hefur gengið ver, hann er búinn að vera með hor og hita annað slagið.... og að auki fékk hann sína fyrstu tönn!!! í fyrradag! Seint koma þær en koma þó, hehehe!

Blásið á kertiðHann varð svo eins árs á laugardag og í tilefni dagsins fékk hann sína fyrstu afmælisveislu og köku :)

Skólinn byrjar svo í næstu viku.... þá kemst hin langþráða rútína loksins á! Ég fer að vinna og lífið dettur í sinn vanagang W00t

Læf is gúd!


heisús y maðre míja!

Hef svosem ekki mikla skrifþörf akkúrrat núna en ég er búin að vera á kafi í myndaalbúminu - þessu digital W00t

Er búin að hlægja slatta yfir ýmsum myndum.... verð að setja inn nokkrar!

Með Mæju og Arnóri í fyrrakvöld.... mætti halda að ég væri í störukeppni!
Elín, Arnór og Mæja, júlí 2010












Gulrótarliturinn allsráðandi 2005, á hátíð í San Miguel með Ágústi:
Elín ágúst 2005



















Þórdís, svo varð ég að setja inn 2 myndir handa þér, þegar ég sá nýju myndina af Enrique þá mundi ég eftir þeirri eldri.... frá ísbarnum í San Miguel!!! W00t - Manstu??!!

Enrique núna fyrir viku síðan:
Enrique júlí 2010


















Enrique í ágúst 2005:
Enrique ágúst 2005
















Ég býð góða nótt með bros á vör LoL


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband